Meginmál

Seðlabanki Íslands lækkar vexti

ATH: Þessi grein er frá 18. júní 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækkavexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3 prósentur í8,5% frá næsta uppboði sem haldið verður 25. júní n.k. Aðrir vextir bankanslækka einnig um 0,3 prósentur frá 21. júní n.k. ef frá eru taldir vextir áinnstæðum á viðskiptareikningum lánastofnana í Seðlabankanum sem verðaóbreyttir.

Seðlabankinn lækkaði síðast vexti í endurhverfum viðskiptum um 0,5 prósenturfrá 21. maí sl. með vísun til þess að óvissu um kjarasamninga hafði verið eyttog að góðar líkur væru á að verðbólguspá bankans frá því í byrjun maí myndirætast. Í frétt bankans um þá vaxtalækkun sagði að hjaðnaði verðbólga áfram ísamræmi við spá bankans sem birt var í Peningamálum í maí myndu vextir aðóbreyttu lækka frekar á komandi mánuðum.

Breyting vísitölu neysluverðs í júní hefur enn aukið líkur á að spá bankansfrá því í maí gangi eftir enda var hækkun vísitölunnar í maí og júní í mjög góðusamræmi við spána. Þá sjást ekki mikil merki þess að hugsanleg upphlaðinverðhækkunarþörf hafi komið fram en of snemmt er þó að fullyrða að slíkt geristekki í einhverjum mæli. Það styrkir enn frekar lækkun vaxta nú að gengikrónunnar hefur verið tiltölulega stöðugt á undanförnum vikum.

Þrátt fyrir þessa vaxtalækkun er aðhaldsstig peningastefnunnar töluvert einsog það birtist í raunvöxtum, enda verðbólgualda nýgengin yfir. Í ljósisamdráttar eftirspurnar verður því að óbreyttu tilefni til frekari lækkunarvaxta á komandi mánuðum. Tímasetningar ráðast hins vegar af framvindunni og matiá horfum en Seðlabankinn mun næst birta verðbólguspá og nýtt mat á ástandi oghorfum í efnahagsmálum í byrjun ágúst.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 21/2002

18. júní 2002