Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 2. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 40,5 milljarðar króna en á innlausn voru 44,4 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 9. júlí n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 27 /2002
2. júlí 2002