Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 4. júlí 2002
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júní 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í júní 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1 milljarð króna í júní og nam 35,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 15,4 milljörðum króna í lok hans. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,4% og hefur þar með styrkst um 10% frá áramótum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 4,6 milljarða króna í júní og námu 83,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna í júní og voru neikvæðar um 29,4 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 29,4 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 3,6 milljarða í júní og nam það 39,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
| Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||
|---|---|---|---|---|
Í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2002 | |||
Desember | Júní | Frá ára- | Í júní | |
Eignaliðir : | 2001 | 2002 | mótum | |
Gjaldeyrisforði | 36.573 | 35.353 | -1.220 | -1.046 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.099 | 4.639 | -460 | 10 |
Ríkissjóðs | 2.144 | 1.685 | -460 | 10 |
Annarra | 2.954 | 2.954 | 0 | 0 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 54.053 | 83.378 | 29.325 | 4.632 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 22.774 | 5.574 | -17.200 | 2 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 14.979 | 15.377 | 398 | 366 |
Seðlar og mynt | 9.174 | 9.336 | 162 | 244 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 965 | 1.279 | 314 | 150 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 17.678 | 29.246 | 11.568 | 3.169 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 837 | 1.170 | 333 | 681 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.288 | 1.393 | 105 | 171 |
Liðir til skýringar : | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 21.595 | 19.977 | -1.618 | -1.412 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -31.099 | -29.378 | 1.721 | 905 |
Kröfur á aðra, brúttó | 76.932 | 89.017 | 12.085 | 4.604 |
Grunnfé: | 27.817 | 39.861 | 12.045 | 3.563 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 24/2002
4. júlí 2002
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok júní 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt
breytingum í júní 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans dróst saman um 1 milljarð króna í júní og nam 35,4 milljörðum króna
í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljóna Bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,4 milljarða króna í
mánuðinum og námu 15,4 milljörðum króna í lok hans. Gengi íslensku
krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,4% og hefur þar með styrkst um 10% frá
áramótum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í
júnílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7
milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 4,6
milljarða króna í júní og námu 83,4 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,6
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna í júní og voru neikvæðar um 29,4
milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 29,4
milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 3,6 milljarða í júní og nam það
39,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Prentvæn útgáfa fréttar (pdf-skjal)
|
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans |
||||
|
Í milljónum króna |
||||
|
Staða í lok tímabils |
Hreyfingar 2002 |
|||
|
Desember |
Júní |
Frá ára- |
Í júní |
|
Eignaliðir : |
2001 |
2002 |
mótum |
|
|
Gjaldeyrisforði |
36.573 |
35.353 |
-1.220 |
-1.046 |
|
Markaðsskráð verðbréf |
5.099 |
4.639 |
-460 |
10 |
|
Ríkissjóðs |
2.144 |
1.685 |
-460 |
10 |
|
Annarra |
2.954 |
2.954 |
0 |
0 |
|
Kröfur á innlánsstofnanir |
54.053 |
83.378 |
29.325 |
4.632 |
|
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir |
22.774 |
5.574 |
-17.200 |
2 |
Skuldaliðir: |
||||
|
Erlendar skuldir til skamms tíma |
14.979 |
15.377 |
398 |
366 |
|
Seðlar og mynt |
9.174 |
9.336 |
162 |
244 |
|
Almennar innstæður innlánsstofnana |
965 |
1.279 |
314 |
150 |
|
Staða á bindireikningum innlánsstofnana |
17.678 |
29.246 |
11.568 |
3.169 |
|
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana |
837 |
1.170 |
333 |
681 |
|
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana |
1.288 |
1.393 |
105 |
171 |
Liðir til skýringar : |
||||
|
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: |
21.595 |
19.977 |
-1.618 |
-1.412 |
|
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: |
-31.099 |
-29.378 |
1.721 |
905 |
|
Kröfur á aðra, brúttó |
76.932 |
89.017 |
12.085 |
4.604 |
|
Grunnfé: |
27.817 |
39.861 |
12.045 |
3.563 |