Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi
utanríkisviðskipta ársins 2001. Slík endurskoðun fór síðast fram í júlí árið
2001. Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá fyrri vog. Nýja
vogin tekur gildi eftir gengisskráningu í dag 5. júlí 2002 og verður notuð við
útreikning gengisvísitölunnar þar til næsta endurskoðun fer fram um svipað leyti
að ári.
Gengisskráningarvogin er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar
utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og
kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og
þjónustuviðskipta. Áhersla er lögð á að hér er aðeins um að ræða tæknilega
breytingu á þeirri gengisvog sem notuð er við daglegan útreikning á gengi
krónunnar og felur ekki í sér breytingu á stefnu Seðlabankans. Helstu breytingar
frá fyrri vog eru að vægi evru eykst um 5,4%, einkum á kostnað vægis
Bandaríkjadals, sem minnkar um 2,2%, og bresks punds, sem minnkar um 2%. Aukið
vægi evrunnar skýrist af auknu vægi hennar í þjónustuviðskiptum. Með þessum
breytingum hefur þróun síðustu ára snúist við, en á árunum 1997-2001 jókst vægi
Bandaríkjadals í gengisskráningarvog krónunnar úr 22,4% í 27,0%.
Nánari upplýsingar veitir Arnór
Sighvatsson, deildarstjóri á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands, í síma
5699600.
Ný gengisskráningarvog (%)
Byggt á viðskiptum 2001
Breyting frá
Lönd
Mynt
Útflutningsvog
Innflutningsvog
Vog
fyrri vog
Bandaríkin
USD
22,76
26,89
24,83
-2,16
Bretland
GBP
14,60
10,97
12,78
-1,99
Kanada
CAD
1,50
0,96
1,23
-0,13
Danmörk
DKK
7,78
8,54
8,16
-0,52
Noregur
NOK
6,75
6,82
6,78
0,70
Svíþjóð
SEK
1,80
5,16
3,48
-0,96
Sviss
CHF
2,74
1,28
2,01
0,36
Evrusvæði
EUR
38,73
35,43
37,08
5,42
Japan
JPY
3,34
3,95
3,65
-0,72
Norður Ameríka
24.26
27,86
26,06
-2,29
Evrópa
72,40
68,19
70,30
3,02
Evrópusambandið
62.91
60,10
61,50
1,95
Japan
3,34
3,95
3,65
-0,73
Alls
100,00
100,00
100,00
0,00
25/2002
5. júlí 2002