Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 58,7 milljarða króna.

ATH: Þessi grein er frá 23. júlí 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 23. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 58,7 milljarðar króna en á innlausn voru 40,4 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 30. júlí n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 30/2002

23. júlí 2002