Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 26,9 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 30. júlí 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 30. júlí.Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 26,9 milljarðar króna en á innlausn voru 25,1 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 6. ágúst n.k.

Stöplaritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 31/2002

30. júlí 2002