Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 50,6 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 6. ágúst 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 6. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 50,6 milljarðar króna en á innlausn voru 58,7 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 13. ágúst n.k.

Stöplaritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 32/2002

6. ágúst 2002