Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 3. september. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfaverðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 42,5 milljarðar króna en á innlausn voru 42,9 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 10. september n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 36/2002
3. september 2002