Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 38 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 10. september 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 10. september. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfaverðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 38 milljarðar króna en á innlausn voru 38,3 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 17. september n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 37/2002

10. september 2002