Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans íendurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,5 prósentur í 7,1% í næstauppboði sem haldið verður 24. september n.k. og aðra vexti bankans einnig um 0,5prósentur frá 21. september n.k.
Þegar Seðlabanki Íslands birti nýjaverðbólguspá og mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum 1. ágúst sl. lækkaðihann vexti í endurhverfum viðskiptum um 0,6 prósentur. Við þá ákvörðun var höfðhliðsjón af ört hjaðnandi verðbólgu, vaxandi slaka í hagkerfinu og auknum líkumá að verðbólgumarkmið bankans næðist þegar á þessu ári. Jafnframt var boðað aðbankinn myndi lækka vexti sína frekar á næstunni ef þróunin staðfesti þessarhorfur. Vísitala neysluverðs lækkaði umtalsvert í ágúst. Í ágúst komu jafnframtfram vísbendingar um að eftirspurn væri tekin að vaxa á ný eftir langvarandisamdrátt. Vöxtur hennar virtist hins vegar mun minni en þarf til að koma í vegfyrir frekari slaka í hagkerfinu. Í ljósi þessa lækkaði Seðlabankinn vexti sínaá ný um 0,3 prósentur 1. september sl.
Hækkun vísitölu neysluverðs íseptember var við efri mörk væntinga á fjármagnsmarkaði. Verðlagsþróunin síðustutvo mánuði samrýmist þó mjög vel spá Seðlabankans frá því í ágúst. Nýjar tölurbenda ennfremur til þess að slaki á vinnumarkaði vaxi enn. Þá bendir margt tilþess að hagvöxtur á næsta ári verði að óbreyttu minni en Þjóðhagsstofnun spáði íjúní sl. og því muni framleiðsluslaki enn ágerast. Stafar þetta annars vegar afþví að alþjóðlegur efnahagsbati virðist ætla að verða veikari en áður var taliðog að ólíklegt er nú talið að innlend atvinnuvegafjárfesting vaxi í þeim mælisem spáð var. Þetta gæti þó breyst ef ákveðið verður að ráðast í nýjar stóriðju-og virkjunarfjárfestingar.
Í þessu ljósi telur Seðlabankinn tilefni til aðlækka vexti sína nú. Ef nýjar hagstærðir komandi vikna staðfesta enn frekarhraða hjöðnun verðbólgu í átt að verðbólgumarkmiði bankans og aukinn slaka íhagkerfinu mun bankinn lækka vexti sína frekar.
Nánari upplýsingar veitirBirgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 5699600.
Nr. 32/2002
18. september 2002