Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 24. september. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfaverðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 30,3 milljarðar króna en á innlausn voru 38 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 1. október n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr.39/2002
24. september 2002