Forsætisráðherra hefur að tillögu Seðlabanka Íslandsundirritað tvær reglugerðir sem varða greiðslumiðlun og gjaldmiðil Íslands.Annars vegar er um að ræða reglugerð um að heildarfjárhæð sérhverrar kröfu eðareiknings skuli greind og greidd með heilli krónu og hins vegar reglugerð uminnköllun þriggja myntstærða (aura). Samkvæmt fyrri reglugerðinni verður engumskylt að inna af hendi greiðslu í aurum frá og með 1. október 2003. Eftir semáður verður heimilt að nota brot úr krónu í útreikningi verðs, en lægri fjárhæðen 0,5 krónur skal þá sleppt og 0,5 krónur eða hærri fjárhæð hækkuð í einakrónu. Samkvæmt síðari reglugerðinni skal fimm, tíu og fimmtíu aura myntinnkölluð. Bankar og sparisjóðir verða skyldugir til að taka við aurum og láta ístaðinn krónur fram til 1. október 2003. Til þess tíma verða aurar áframlögmætur gjaldmiðill, en ekki lengur. Seðlabanki Íslands mun þó innleysa auratil 1. október 2004.
Myntheitið eyrir var tekið upp í myntkerfi danska ríkisins árið 1873 erverðreikningur var færður úr tylftarkerfi í tugakerfi. Árið 1922 var sleginfyrsta auramynt sem íslensk stjórnvöld gáfu út. Auramynt var síðan innkölluð1974, og lauk þeirri innköllun ári síðar. Við gjaldmiðilsbreytingu í ársbyrjun1981, er verðgildi íslenskrar krónu var hundraðfaldað, var auramynt gefin út aðnýju. Slegin var fimm, tíu og fimmtíu aura mynt með ártalinu 1981 og fimmtíuaurar aftur með ártalinu 1986.
Árið 1985 hætti Seðlabanki Íslands að setja fimm aura mynt í umferð, og fimmárum seinna var hætt að dreifa tíu og fimmtíu aura mynt frá bankanum. Eftirgjaldmiðilsbreytinguna 1981 hefur verið slegin auramynt sem nemur um það bil11,8 milljónum króna. Af þeirri fjárhæð eru nú um 10 milljónir króna í umferðutan Seðlabankans eða um 64 milljónir stykki. Lítið hefur komið inn af aurum ífjárhirslur Seðlabankans á síðari árum. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs komu innaðeins 46 þúsund stykki eða sem svarar um 7.500 krónum.
Með lögum nr. 36 frá 27. apríl 1998 um breytingu á lögum um gjaldmiðilÍslands (nr. 22/1968) veitti Alþingi ráðherra heimild til að ákveða að fjárhæðsérhverrar kröfu eða reiknings skyldi greind og greidd með heilli krónu. Meðfyrri reglugerðinni sem forsætisráðherra undirritaði 19. september sl. hefurþessi heimild verið nýtt.
Reglugerðirnar verða birtar í Stjórnartíðindum og auglýsing um innköllunbirt í Lögbirtingablaði og dagblöðum. Efni er varðar innköllunina má einnigfinna á vef Seðlabankans.
Nr. 33/2002
30. september 2002