Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokseptember 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í ágúst2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst af sérstökum ástæðum tímabundið um 12,2milljarða króna í september og nam 49,7 milljörðum króna í lok mánaðarins(jafnvirði 575 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Þessar breytingarmá rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs, en þær munu ganga til baka í október ognóvember. Erlend skammtímalán bankans hækkuðu lítillega í mánuðinum og námu 18,3milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,2milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til aðstyrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningu bankans nr.28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,2%.
Í ágúst var gerður framvirkur samningur um sölu á gjaldeyri viðinnlánsstofnun, en Seðlabankinn skuldbatt sig til að selja stofnuninni gjaldeyrisamtals að fjárhæð 3,3 milljarðar króna í þremur greiðslum á tímabilinuseptember 2002 til mars 2003. Í september var fyrsti hluti þessa samnings efndurog seldi bankinn gjaldeyri að fjárhæð 1,8 milljarðar króna.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í septemberlokmiðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 3,8 milljarða króna íseptember og námu 74,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 6,0 milljörðum króna ímánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 12,9 milljarðakróna í september og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 37,9 milljörðum króna í lokmánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í september um 5,5 milljarða króna og namþað 33,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veitabankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma569-9600.
Nr. 35/2002
4. október 2002