Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 8.október. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrrieigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 24,6 milljarðar króna en á innlausn voru 30,3 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 15. október n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 41/2002
8. október 2002