Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 45,6 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 15. október 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 15. október.Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda áný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 7,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 45,6 milljarðar króna en á innlausn voru 55,7 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 22. október n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr.42/2002

15. október 2002