Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans íendurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3 prósentur í 6,8% í næstauppboði sem haldið verður 22. október n.k. Aðrir vextir Seðlabankans verðalækkaðir um 0,3 prósentur 21. október n.k.
Seðlabanki Íslands tilkynnti síðast um lækkun vaxta sinna um 0,5 prósentur18. september sl. Rökin fyrir þeirri ákvörðun voru minnkandi verðbólga í samræmivið verðbólguspá bankans sem birt var í byrjun ágúst og vísbendingar um vaxandislaka í hagkerfinu. Bankinn lýsti því þá yfir að ef nýjar upplýsingar staðfestuáframhaldandi hjöðnun verðbólgu í átt að verðbólgumarkmiði hans og aukinn slakaí hagkerfinu myndi bankinn lækka vexti frekar. Þrennt bendir einkum til að þettasé að ganga eftir. Í fyrsta lagi stóðst verðbólguspá bankans fyrir þriðjaársfjórðung nær alveg, jafnvel þótt vísitala neysluverðs hafi hækkað í októbernokkuð umfram væntingar markaðsaðila. Þetta var annar ársfjórðungurinn í röð semverðbólguspá bankans rættist nánast að fullu. Í öðru lagi bendir atvinnuleysi íseptember til þess að slaki á vinnumarkaði vaxi enn. Atvinnuleysi stóð í staðfrá ágúst til september en jókst í u.þ.b. 3% ef tekið er tillit tilárstíðasveiflu. Í þriðja lagi eru samkvæmt nýlegum þjóðhagsspám horfur á minnihagvexti á árinu 2003 en spáð var á miðju ári 2002 og er þá ekki tekið tillittil hugsanlegra stóriðjuframkvæmda.
Seðlabanki Íslands vinnur nú að gerð nýrrar verðbólguspár ásamt mati áástandi og horfum í þjóðarbúskapnum. Hvort tveggja verður birt íársfjórðungsriti bankans Peningamálum 6. nóvember n.k. og verður lagt tilgrundvallar stefnunni í peningamálum á komandi mánuðum.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569 9600.
Nr. 36/2002
15. október 2002