Meginmál

Moody's hækkar einkunn á erlendum lánum Íslands í Aaa

ATH: Þessi grein er frá 21. október 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur hækkaðlánshæfismat skuldabréfa og bankainnstæðna í erlendri mynt  vegnaskuldbindinga Íslands í Aaa sem er hæsta einkunn sem gefin er. Ísland hafði áðureinkunnina Aa3. Jafnframt hefur einkunn Ástralíu og Nýja-Sjálands verið hækkuðúr Aa2 í Aaa. Breytingin er niðurstaða af  endurmati á lánshæfi ríkjanna íframhaldi af breytingu á aðferðafræði hjá Moody's sem gerð var árið 2001.Skuldabréf í erlendri mynt sem eru gefin út eða með ábyrgð  stjórnvalda áÍslandi, Nýja-Sjálandi og í Ástralíu fá nú sama mat og gildir um innlendarskuldbindingar ríkjanna, það er Aaa.

Lánshæfiseinkunn ríkis setur þak á lánshæfi innlendra aðila vegnaskuldbindinga þeirra í erlendri mynt. Með henni er lagt mat á  hversu mikilhætta sé á að ríkisvaldið stöðvi greiðslur vegna afborgana á erlendum skuldumtil að koma í veg fyrir að gjaldeyrisvarasjóðir þverri.

Í frétt Moody's segir að fyrirtækið telji sífellt minnkandi líkur á aðstjórnvöld í þróuðum iðnríkjum, eins og þeim sem fengu lánshæfismatið hækkað ídag, myndu beita greiðslustöðvunum sem stjórntæki. Stjórnarhættir í ríkjunum ásíðastliðnum áratug hefðu ennfremur sýnt fram á að þverrandi líkur væru á aðríkissjóðir þar tækju á sig alla ábyrgð vegna  erlendra skuldbindingaannarra opinberra aðila eða einkaaðila.

Ennfremur sagði Moody's að vegna þess að í ríkjunum væri fylgt sveigjanlegrigengisstefnu væru minni líkur á að þau yrðu fyrir barðinu á gjaldeyriskreppumsem gætu verið fylgifiskar fastgengisstefnu.

Moody's sagði í fréttinni að ekki væri hægt að rekja ákvörðun um hærra mat tileinstakra atburða í ríkjunum þremur. Frekar væri hér um að ræða áfanga í þróunsem gætti á lánshæfismati fyrirtækisins á ríkjum vegna erlendraskuldbindinga.

Á síðasta ári breytti fyrirtækið aðferðafræði sinni við lánshæfismat. Núgetur lánshæfismat á erlendum skuldbindingum aðila eins og banka, veitustofnana,símafélaga eða annarra slíkra aðila farið upp fyrir lánshæfismat ríkisins þarsem þessir aðilar hafa aðsetur. Þessi breyting endurspeglar það mat Moody's aðflestar ríkisstjórnir átti sig nú á því hversu alvarlegar afleiðingar það gætihaft fyrir hagkerfið ef mikilvægum fyrirtækjum sem þessum væri meinað að greiðaaf skuldum í erlendri mynt. Hækkun lánshæfismats  ríkjanna nú gefur tilkynna það mat Moody's að mjög ólíklegt sé að viðkomandi ríkisstjórnir myndustöðva endurgreiðslur á erlendum lánum.

Matsfyrirtækið telur að þrátt fyrir að í þróuðum iðnríkjum hafi sú áhætta semlánshæfiseinkunn ríkjanna fyrir erlendar skuldbindingar átti að mæla nánasthorfið sé slík áhætta sannarlega enn til staðar í öðrum heimshlutum. Því munilánshæfiseinkunnir enn verða gefnar út fyrir öll ríki í því skyni að meta slíkaáhættu.

Fréttatilkynningar eru væntanlegar um það hvaða áhrif þessar breytingar hafaá lánshæfismat annarra skuldunauta í þessum löndum.

Frekari upplýsingar um lánshæfiseinkunnir ríkja vegna erlendra skuldbindingafást á vefsíðu Moody's Investor Service: www. Moodys.com

Nánari upplýsingar að öðru leyti veita Birgir Ísleifur Gunnarsson formaðurbankastjórnar og Jón Þ. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs SeðlabankaÍslands í síma 569-9600.

Frétt nr. 37/2002

21. október 2002