Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í október 2002

ATH: Þessi grein er frá 6. nóvember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok október 2002 og til samanburðar í lok desember 2001ásamt breytingum í október 2002 og frá ársbyrjun 2002.

GjaldeyrisforðiSeðlabankans jókst af sérstökum ástæðum tímabundið í september og hefur það núgengið til baka, en forðinn lækkaði í október um 13,2 milljarða og nam 36,5milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 419 milljóna Bandaríkjadala á gengií mánaðarlok). Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Erlendskammtímalán bankans lækkuðu um 4,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 13,7milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendummillibankamarkaði fyrir 1,2 milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlunhans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var ífréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar veiktist ímánuðinum um 0,8%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1milljarði króna í októberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráðverðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans áinnlánsstofnanir jukust um 3,1 milljarð króna í október og námu 77,9 milljörðumkróna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 2,0 milljarðakróna í mánuðinum og námu 8,0 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nettókröfurbankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 7,4 milljarða króna í október ognámu nettóinnstæður ríkissjóðs um 31 milljarði króna í lokmánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í október um 4,5 milljarða króna og namþað 37,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 39/2002

6. nóvember 2002