Nóvemberhefti Peningamála og verðbólguspá birt í dag 6. nóvember 2002
ATH: Þessi grein er frá 6. nóvember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Nóvemberhefti Peningamála og ársfjórðungsleg verðbólguspá Seðlabanka Íslands er birt á vef bankans í dag. Í þessu hefti er að venju birt mat Seðlabanka Íslands á stöðu efnahags- og peningamála, greining á stöðugleika fjármálakerfisins svo og greinar um sértæk efni eftir starfsmenn bankans. Sjá hér Peningamál.
Hér að neðan má sjá glærur sem stuðst var við á fundum með blaða- og fréttamönnum annars vegar og með fulltrúum fjármálastofnana hins vegar.