Meginmál

Rit um opinberan gjaldmiðil

ATH: Þessi grein er frá 12. nóvember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns hefur gefið útritið Opinber gjaldmiðill á Íslandi. Í ritinu er gerð grein fyrir öllumopinberum gjaldmiðli sem gefinn hefur verið út til notkunar á Íslandi frá því á18. öld, er saga hans hefst, til þessa dags. Hér er bæði um að ræða seðla ogmynt, en mynt er skipt í tvo sjálfstæða flokka, annars vegar gangmynt og hinsvegar tilefnismynt, þ.e. mynt sem gefin er út til hátíðabrigða.

Sagaopinbers gjaldmiðils á Íslandi hefst árið 1778 með formlegri lögfestingu danskrakúrantseðla sem voru sérstaklega búnir íslenskum texta til þess að þeir gætugengið hér. Íslensk gjaldmiðilssaga er óvenjuleg að því leyti að hér komu seðlartil sögu talsvert fyrr en slegin mynt öndvert við það sem gerst hefur meðflestum öðrum þjóðum. Fyrstu seðlar sem íslensk stjórnvöld létu gera voru gefnirút 1886, en íslensk mynt kom ekki til fyrr en 1922. Á löngum tíma hefur útgáfaopinbers gjaldmiðils verið á margra höndum, og í ritinu er gerð grein fyrir hluthvers útgefanda fyrir sig í tímaröð.

Tvisvar hefur verið efnt til gagngerra gjaldmiðilsskipta hér á landi. Árið1873 voru gefin út ný myntlög í Danmörku, en með þeim urðu róttækustu breytingarsem gerðar hafa verið á peningakerfinu er (1) lögfestur var nýr myntfótur,gullfótur í stað silfurs; (2) tekið var upp tugamál í verðreikningi í staðtylftarmáls; og (3) ný myntheiti, króna og eyrir, komu í stað spesíu(spesíudals), ríkisdals og skildings. ' Um áramótin 1980/81 var í annað sinnskipt um gjaldmiðil er verðgildi krónu var hundraðfaldað. ' Minni háttar var súbreyting er seðlar voru innkallaðir og gefnir út í breyttum lit vegnaeignakönnunar um áramótin 1947/48.

Í ritinu er birt allnákvæm lýsing hverrar gjaldmiðilseiningar fyrir sig þarsem greind er stærð, litur, myndefni og fleiri atriði í gerð seðla ásamt þeimundirskriftum sem þekktar eru, ' og stærð, málmblanda og myndefni á mynt ásamtárgerðum og upplagstölum. Þá er greint hvar seðlar eru prentaðir og mynt sleginog hverjir hafa annast hönnun gjaldmiðilsins eftir því sem um er vitað. Loks ergerð ítarleg grein fyrir lagaramma gjaldmiðilsins og rakin opinber ákvæði ervarða útgáfu hans og meðferð og upphaf og gildislok hverrargjaldmiðilseiningar.

Opinber gjaldmiðill á Íslandi er íritröðinni Myntritsem Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns gefurút. Ritið er 74 bls. og búið litmyndum af öllum þeim gjaldmiðli sem um erfjallað. Það fæst í Seðlabanka Íslands og kostar kr. 1.500.

Nr. 40/2002

12. nóvember 2002