Meginmál

Rit um opinberan gjaldmiðil

ATH: Þessi grein er frá 12. nóvember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns hefur gefið útritið Opinber gjaldmiðill á Íslandi. Í ritinu er gerð grein fyrir öllumopinberum gjaldmiðli sem gefinn hefur verið út til notkunar á Íslandi frá því á18. öld, er saga hans hefst, til þessa dags. Hér er bæði um að ræða seðla ogmynt, en mynt er skipt í tvo sjálfstæða flokka, annars vegar gangmynt og hinsvegar tilefnismynt, þ.e. mynt sem gefin er út til hátíðabrigða.

Saga opinbersgjaldmiðils á Íslandi hefst árið 1778 með formlegri lögfestingu danskrakúrantseðla sem voru sérstaklega búnir íslenskum texta til þess að þeir gætugengið hér. Íslensk gjaldmiðilssaga er óvenjuleg að því leyti að hér komu seðlartil sögu talsvert fyrr en slegin mynt öndvert við það sem gerst hefur meðflestum öðrum þjóðum. Fyrstu seðlar sem íslensk stjórnvöld létu gera voru gefnirút 1886, en íslensk mynt kom ekki til fyrr en 1922. Á löngum tíma hefur útgáfaopinbers gjaldmiðils verið á margra höndum, og í ritinu er gerð grein fyrir hluthvers útgefanda fyrir sig í tímaröð.

Tvisvar hefur verið efnt til gagngerragjaldmiðilsskipta hér á landi. Árið 1873 voru gefin út ný myntlög í Danmörku, enmeð þeim urðu róttækustu breytingar sem gerðar hafa verið á peningakerfinu er(1) lögfestur var nýr myntfótur, gullfótur í stað silfurs; (2) tekið var upptugamál í verðreikningi í stað tylftarmáls; og (3) ný myntheiti, króna og eyrir,komu í stað spesíu (spesíudals), ríkisdals og skildings. ' Um áramótin 1980/81var í annað sinn skipt um gjaldmiðil er verðgildi krónu var hundraðfaldað. 'Minni háttar var sú breyting er seðlar voru innkallaðir og gefnir út í breyttumlit vegna eignakönnunar um áramótin 1947/48.

Í ritinu er birt allnákvæmlýsing hverrar gjaldmiðilseiningar fyrir sig þar sem greind er stærð, litur,myndefni og fleiri atriði í gerð seðla ásamt þeim undirskriftum sem þekktar eru,' og stærð, málmblanda og myndefni á mynt ásamt árgerðum og upplagstölum. Þá ergreint hvar seðlar eru prentaðir og mynt slegin og hverjir hafa annast hönnungjaldmiðilsins eftir því sem um er vitað. Loks er gerð ítarleg grein fyrirlagaramma gjaldmiðilsins og rakin opinber ákvæði er varða útgáfu hans og meðferðog upphaf og gildislok hverrar gjaldmiðilseiningar.

Opinber gjaldmiðill áÍslandi er í ritröðinni Myntrit sem Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns gefurút. Ritið er 74 bls. og búið litmyndum af öllum þeim gjaldmiðli sem um erfjallað. Það fæst í Seðlabanka Íslands og kostar kr. 1.500.

Nr. 40/2002

12. nóvember 2002