Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í nóvember 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð í stað milli mánaða og nam 36,5 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 426 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 16,4 milljörðum króna í lok hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,0 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,3%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljörðum króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 1,2 milljarða króna í nóvember og námu 79,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað í mánuðinum og námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 4,4 milljarða króna í nóvember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 26,2 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans jókst í nóvember um 2,4 milljarða króna og nam það 40,2 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi S.Í. ' m.kr.
Staða í lok tímabils
Hreyfingar 2002
Desember
Nóvember
Frá ára-
Í nóvember
Eignaliðir :
2001
2002
mótum
Gjaldeyrisforði
36.573
36.545
-29
1
Markaðsskráð verðbréf
5.099
5.165
66
41
Ríkissjóðs
2.144
1.795
-349
11
Annarra
2.954
3.369
415
31
Kröfur á innlánsstofnanir
54.053
79.123
25.070
1.241
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
22.774
8.096
-14.678
62
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma
14.979
16.404
1.425
2.678
Seðlar og mynt
9.174
9.275
101
230
Almennar innstæður innlánsstofnana
965
1.331
366
1.078
Staða á bindireikningum innlánsstofnana
17.678
29.584
11.906
1.056
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana
837
790
-47
512
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana
1.288
1.305
17
316
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:
21.595
20.141
-1.454
-2.677
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:
-31.099
-26.151
4.948
4.374
Kröfur á aðra, brúttó
76.932
87.314
10.382
1.298
Grunnfé:
27.817
40.190
12.374
2.364
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans
í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í
spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf
annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur
bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur
bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán
sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð
utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra
fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og
bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem
þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn
ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi
nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að
frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við
Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar
brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess
teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í
Seðlabankanum.
Nr. 43/2002
5. desember 2002