Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 17. desember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfaverðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 30,1 milljarður króna en á innlausn voru 27,9 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 27. desember n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 51/2002
17. desember 2002