Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 43,6 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 27. desember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,föstudaginn 27. desember. Samningstíminn er 11 dagar, en þá hverfa verðbréfintil fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 43,6 milljarðar króna en á innlausn voru 49 milljarðar króna.Næsta uppboð er fyrirhugað 3. janúar n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr. 52/2002

27. desember 2002