Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands desember 2002 8. janúar 2003
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok desember 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í desember 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2002 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega milli mánaða og nam 37,2 milljörðum króna í lok desember (jafnvirði 462 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans stóðu því sem næst í stað í mánuðinum og námu 16,5 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,1 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í frétt bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 2,6% og um 13,5% á árinu 2002.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,3 milljörðum króna í desemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 10 milljarða króna í desember og námu 69,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega í mánuðinum og námu 8,2 milljarði króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 5,3 milljarða króna í desember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 20,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans dróst saman í desember um 7,6 milljarða króna og nam það 32,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.
| Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||
|---|---|---|---|---|
Í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2002 | |||
Desember | Desember | Frá ára- | Í | |
Eignaliðir : | 2001 | 2002 | mótum | desember |
Gjaldeyrisforði | 36.573 | 37.193 | 619 | 648 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.099 | 5.260 | 162 | 96 |
Ríkissjóðs | 2.144 | 1.816 | -329 | 20 |
Annarra | 2.954 | 3.445 | 490 | 75 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 54.053 | 69.141 | 15.088 | -9.982 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 22.774 | 8.227 | -14.548 | 130 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 14.979 | 16.499 | 1.520 | 95 |
Seðlar og mynt | 9.174 | 9.590 | 416 | 314 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 965 | 1.163 | 199 | -168 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 17.678 | 21.874 | 4.196 | -7.711 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 837 | 75 | -762 | -715 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.288 | 1.259 | -29 | -46 |
Liðir til skýringar : | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 21.595 | 20.694 | -901 | 553 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -31.099 | -20.851 | 10.248 | 5.300 |
Kröfur á aðra, brúttó | 76.932 | 77.433 | 501 | -9.882 |
Grunnfé: | 27.817 | 32.626 | 4.810 | -7.564 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 1/2003
8. janúar 2003
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok desember 2002 og til samanburðar í lok desember 2001
ásamt breytingum í desember 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Þar sem
áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2002
bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu
uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega milli mánaða og
nam 37,2 milljörðum króna í lok desember (jafnvirði 462 milljóna Bandaríkjadala
á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans stóðu því sem næst í
stað í mánuðinum og námu 16,5 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn
keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,1 milljarð króna, og er
það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína
sem kynnt var í frétt bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar
styrktist í mánuðinum um 2,6% og um 13,5% á árinu 2002.
Markaðsskráð
verðbréf í eigu bankans námu 5,3 milljörðum króna í desemberlok miðað við
markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum
króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 10 milljarða
króna í desember og námu 69,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir hækkuðu lítillega í mánuðinum og námu 8,2 milljarði króna í
mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um
5,3 milljarða króna í desember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 20,9 milljörðum
króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans dróst saman í desember um 7,6
milljarða króna og nam það 32,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.
|
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans |
||||
|
Í milljónum króna |
||||
|
Staða í lok tímabils |
Hreyfingar 2002 |
|||
|
Desember |
Desember |
Frá ára- |
Í |
|
Eignaliðir : |
2001 |
2002 |
mótum |
desember |
|
Gjaldeyrisforði |
36.573 |
37.193 |
619 |
648 |
|
Markaðsskráð verðbréf |
5.099 |
5.260 |
162 |
96 |
|
Ríkissjóðs |
2.144 |
1.816 |
-329 |
20 |
|
Annarra |
2.954 |
3.445 |
490 |
75 |
|
Kröfur á innlánsstofnanir |
54.053 |
69.141 |
15.088 |
-9.982 |
|
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir |
22.774 |
8.227 |
-14.548 |
130 |
Skuldaliðir: |
||||
|
Erlendar skuldir til skamms tíma |
14.979 |
16.499 |
1.520 |
95 |
|
Seðlar og mynt |
9.174 |
9.590 |
416 |
314 |
|
Almennar innstæður innlánsstofnana |
965 |
1.163 |
199 |
-168 |
|
Staða á bindireikningum innlánsstofnana |
17.678 |
21.874 |
4.196 |
-7.711 |
|
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana |
837 |
75 |
-762 |
-715 |
|
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana |
1.288 |
1.259 |
-29 |
-46 |
Liðir til skýringar : |
||||
|
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: |
21.595 |
20.694 |
-901 |
553 |
|
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: |
-31.099 |
-20.851 |
10.248 |
5.300 |
|
Kröfur á aðra, brúttó |
76.932 |
77.433 |
501 |
-9.882 |
|
Grunnfé: |
27.817 |
32.626 |
4.810 |
-7.564 |