Í lok ágúst sl. tilkynnti Seðlabanki Íslands að hann hygðist kaupa gjaldeyriá innlendum gjaldeyrismarkaði í því skyni að styrkja gjaldeyrisstöðu sína.Bankinn myndi kaupa gjaldeyri reglulega tvisvar til þrisvar í viku, 1,5milljónir Bandaríkjadala í hvert sinn. Jafnframt yrði bankinn reiðubúinn aðkaupa gjaldeyri af viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði að þeirra frumkvæði og íhærri fjárhæðum.
Regluleg gjaldeyriskaup hófust 2. september sl. Í fyrstu keypti Seðlabankinngjaldeyri á mánudögum og miðvikudögum. Frá 10. janúar hefur bankinn einnig keypt1,5 milljón Bandaríkjadala á föstudögum. Auk þess keypti bankinn 50 milljónirBandaríkjadala af einum viðskiptavaka um miðjan janúar. Samtals nema þessi kaupnú u.þ.b. 10 ma.kr.
Í tilkynningu Seðlabankans í ágúst sl. kom fram að stefnt væri að því aðkaupa Bandaríkjadali að andvirði allt að 20 milljörðum íslenskra króna fyrir lokárs 2003. Markmið kaupanna væri ekki að hafa áhrif á gengi íslensku krónunnarheldur að efla gjaldeyrisstöðu bankans.
Innstreymi gjaldeyris hefur verið meira en séð var fyrir sl. haust. Það gefurSeðlabankanum færi á að styrkja gjaldeyrisstöðu sína hraðar en forsendur virtusttil í haust. Því hefur bankastjórn ákveðið að frá og með fimmtudeginum 6.febrúar og þar til annað verður ákveðið kaupi bankinn 1,5 milljón Bandaríkjadalahvern virkan dag.
Nr. 2/2003
5. febrúar 2003