Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 6. febrúar 2003
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok janúar 2002 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í janúar 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði milli mánaða um 1 milljarð króna og nam 36,2 milljörðum króna í lok janúar (jafnvirði 471 milljónar Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 3,6 milljarða og námu þau 12,9 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 5,5 milljarða króna í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 2,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,3 milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 4,4 milljarða króna í janúar og námu 73,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega í mánuðinum og námu 8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna í janúar og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 23,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans jókst í janúar um 4,4 milljarða króna og nam 37 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 3/2003
6. febrúar 2003
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2003 | |||
Desember | Janúar | Frá ára- | Í | |
Eignaliðir : | 2003 | 2003 | mótum | Janúar |
Gjaldeyrisforði | 37.194 | 36.160 | -1.034 | -1.034 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.260 | 5.268 | 8 | 8 |
Ríkissjóðs | 1.816 | 1.823 | 8 | 8 |
Annarra | 3.445 | 3.445 | 0 | 0 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 69.141 | 73.556 | 4.415 | 4.415 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 8.227 | 8.015 | -212 | -212 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 16.499 | 12.943 | -3.556 | -3.556 |
Seðlar og mynt | 9.590 | 9.088 | -502 | -502 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 1.164 | 475 | -689 | -689 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 21.837 | 27.492 | 5.655 | 5.655 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 75 | 46 | -29 | -29 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.258 | 1.390 | 132 | 132 |
Liðir til skýringar : | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 20.696 | 23.217 | 2.522 | 2.522 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -20.846 | -23.617 | -2.771 | -2.771 |
Kröfur á aðra, brúttó | 77.454 | 81.706 | 4.252 | 4.252 |
Grunnfé: | 32.590 | 37.055 | 4.464 | 4.464 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok janúar 2002 og til samanburðar í lok desember 2002
ásamt breytingum í janúar 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans lækkaði milli mánaða um 1 milljarð króna og nam 36,2 milljörðum
króna í lok janúar (jafnvirði 471 milljónar Bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 3,6
milljarða og námu þau 12,9 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti
gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 5,5 milljarða króna í samræmi við
áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í
fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í
mánuðinum um 2,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,3 milljörðum
króna í janúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir hækkuðu um 4,4 milljarða króna í janúar og námu 73,6 milljörðum
króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega í
mánuðinum og námu 8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans
á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna í janúar og námu
nettóinnstæður ríkissjóðs 23,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé
bankans jókst í janúar um 4,4 milljarða króna og nam 37 milljörðum króna í
mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 3/2003
6. febrúar 2003
|
Staða í lok tímabils |
Hreyfingar 2003 |
|||
|
Desember |
Janúar |
Frá ára- |
Í |
|
|
Eignaliðir : |
2003 |
2003 |
mótum |
Janúar |
|
Gjaldeyrisforði |
37.194 |
36.160 |
-1.034 |
-1.034 |
|
Markaðsskráð verðbréf |
5.260 |
5.268 |
8 |
8 |
|
Ríkissjóðs |
1.816 |
1.823 |
8 |
8 |
|
Annarra |
3.445 |
3.445 |
0 |
0 |
|
Kröfur á innlánsstofnanir |
69.141 |
73.556 |
4.415 |
4.415 |
|
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir |
8.227 |
8.015 |
-212 |
-212 |
|
Skuldaliðir: |
||||
|
Erlendar skuldir til skamms tíma |
16.499 |
12.943 |
-3.556 |
-3.556 |
|
Seðlar og mynt |
9.590 |
9.088 |
-502 |
-502 |
|
Almennar innstæður innlánsstofnana |
1.164 |
475 |
-689 |
-689 |
|
Staða á bindireikningum innlánsstofnana |
21.837 |
27.492 |
5.655 |
5.655 |
|
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana |
75 |
46 |
-29 |
-29 |
|
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana |
1.258 |
1.390 |
132 |
132 |
|
Liðir til skýringar : |
||||
|
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: |
20.696 |
23.217 |
2.522 |
2.522 |
|
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: |
-20.846 |
-23.617 |
-2.771 |
-2.771 |
|
Kröfur á aðra, brúttó |
77.454 |
81.706 |
4.252 |
4.252 |
|
Grunnfé: |
32.590 |
37.055 |
4.464 |