Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 11.febrúar. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrrieigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 21,5 milljarðar króna en á innlausn voru 29,8 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 18. febrúar n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 7/2003
11. febrúar 2003