Seðlabanki Íslands hefur á undanförnum árum stefnt að því að búa, eftirþví sem aðstæður leyfa, íslenskum lánastofnunum starfsumhverfi sem ersambærilegt því sem tíðkast í flestum Evrópuríkjum. Í því skyni hafa veriðgerðar breytingar á reglum er varða tilhögun á fyrirgreiðslu bankans viðlánastofnanir, skilgreiningu á bindiskyldum lánastofnunum og kröfur umuppgjörstryggingar.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að stíga frekari skref í þessaátt með eftirtöldum breytingum á reglum um bindiskyldu íslenskra lánastofnana:
1. Frá 21. mars 2003 verða bindihlutföll, þ.e.hlutföll innláns-
bindingar lánastofnana, sem nú eru1,5% og 4%, lækkuð í
1% og3%.
2. Frá 1. apríl 2003verður svigrúm lánastofnana til að nýta bundið
fétil tryggingar fyrir uppgjöri í greiðslukerfum takmarkaðvið
helming umsaminnar tryggingarfjárhæðar. Þessitakmörkun er til
þess ætluð að tryggja aðlánastofnanir hafi svigrúm á
bindireikningi til að mæta sveiflum ílausafjárstöðu.
3. Fyrir lok ársins eru fyrirhugaðar frekaribreytingar svo sem að
færa bindigrunninn ogbindihlutföll til samræmis við reglur
SeðlabankaEvrópu. Jafnframt fellur þá niður heimild til aðnota
bundiðfé til tryggingar fyrir uppgjöri í greiðslukerfum.
Búast má við aðframangreindar breytingar geti leitt til um helmings lækkunar á bindiskylduíslenskra lánastofnana.
Nánari upplýsingar veitir Birgir ÍsleifurGunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.
Nr. 5/2003
28. febrúar 2003