Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. mars 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokfebrúar 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í febrúar2003 og frá ársbyrjun 2003. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð þvísem næst í stað milli mánaða og nam 36,1 milljörðum króna í lok febrúar(jafnvirði 465 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendskammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 1,8 milljarða króna og námu þau 11,1milljarði króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendummillibankamarkaði fyrir 2,2 milljarða króna í febrúar, og er það er í samræmivið áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var ífréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003. Gengi íslensku krónunnar stóðþví sem næst í stað í febrúar og hafði styrkst um 2,9% frá áramótum.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,7 milljörðum króna í febrúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2milljörðum króna, en þau lækkuðu um 0,6 milljarða króna í mánuðinum. Í byrjunmánaðarins voru spariskírteini á gjalddaga að fjárhæð 0.6 milljarðarkróna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,8 milljarðakróna í febrúar og námu 74,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 8,1 milljarði króna ímánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanirhækkuðu um 5,7 milljarða króna í febrúar og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 17,9milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í febrúar um7,3 milljarða króna og nam það 44,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 7/2003

6. mars 2003