Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 31,7 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 25. mars 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 25. mars.Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda áný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 31,7 milljarðar króna en á innlausn voru 29 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 1. apríl n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr.13/2003

25. mars 2003