Fara beint í Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 43,6 milljarða króna1. apríl 2003

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 1. apríl.Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda áný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 43,6 milljarðar króna en á innlausn voru 46,6 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 8. apríl n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 14/2003

1. apríl 2003