Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok mars 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í mars 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði lítillega milli mánaða og nam 35,9 milljörðum króna í lok mars (jafnvirði 465 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 0,9 milljarða og námu þau 10,2 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,5 milljarða króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mars um 0,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna í mars og námu 73,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu í stað og námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8,8 milljarða króna í mars og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 26,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í mars um 7,3 milljarða króna og nam það 37,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 10/2003
4.apríl 2003
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabils
Hreyfingar 2003
Desember
Mars
Frá ára-
Í
Eignaliðir :
2002
2003
mótum
mars
Gjaldeyrisforði
37.194
35.940
-1.255
-119
Markaðsskráð verðbréf
5.260
4.602
-658
-114
Ríkissjóðs
1.816
1.167
-649
-6
Annarra
3.445
3.435
-9
-109
Kröfur á innlánsstofnanir
69.141
73.848
4.707
-459
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
8.227
8.075
-151
-38
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma
16.499
10.178
-6.321
-964
Seðlar og mynt
9.590
9.104
-486
33
Almennar innstæður innlánsstofnana
1.164
1.144
-20
-116
Staða á bindireikningum innlánsstofnana
21.837
26.832
4.995
-7.215
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana
75
79
3
31
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana
1.258
716
-542
-1.044
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:
20.696
25.762
5.066
845
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:
-20.846
-26.707
-5.861
-8.825
Kröfur á aðra, brúttó
77.454
82.049
4.595
-480
Grunnfé:
32.590
37.079
4.489
-7.298
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign
Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign
bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð
verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru
brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru
brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna
skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð
utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra
fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og
bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem
þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn
ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi
nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að
frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við
Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar
brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess
teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í
Seðlabankanum.