Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í apríl 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,6 milljarða króna milli mánaða og nam 38,5 milljörðum króna í lok apríl (jafnvirði 513 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans hækkuðu í mánuðinum um 0,9 milljarða króna og námu þau 11,1 milljarði króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,1 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003 Gengi íslensku krónunnar styrktist í apríl um 0,5%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,9 milljarða króna í apríl og námu 71 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust óverulega og námu 8,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,8 milljarða króna í apríl og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í apríl um 0,3 milljarða króna og nam það 36,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 12/2003
7. maí 2003
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||
---|---|---|---|---|
í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2003 | |||
Desember | Apríl | Frá ára- | Í | |
Eignaliðir: | 2002 | 2003 | mótum | apríl |
Gjaldeyrisforði | 37.194 | 38.499 | 1.304 | 2.559 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.260 | 4.821 | -440 | 219 |
Ríkissjóðs | 1.816 | 1.184 | -631 | 17 |
Annarra | 3.445 | 3.636 | 192 | 201 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 69.141 | 70.958 | 1.817 | -2.889 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 8.227 | 8.367 | 140 | 292 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 16.499 | 11.060 | -5.439 | 882 |
Seðlar og mynt | 9.590 | 9.421 | -169 | 317 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 1.164 | 2.052 | 888 | 908 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 21.837 | 25.364 | 3.527 | -1.468 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 75 | 98 | 22 | 19 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.258 | 713 | -545 | -3 |
Liðir til skýringar: | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 20.696 | 27.439 | 6.743 | 1.677 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -20.846 | -25.885 | -5.039 | 822 |
Kröfur á aðra, brúttó | 77.454 | 79.434 | 1.980 | -2.615 |
Grunnfé: | 32.590 | 36.837 | 4.246 | -242 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.