Á fyrsta fjórðungi ársins var halli á viðskiptajöfnuði við útlönd einn milljarður króna samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tíma í fyrra var viðskiptahallinn 1,5 milljarðar króna. Vöruviðskipti voru hagstæð um 6,7 milljarða króna en 2,7 milljarða króna halli var á þjónustujöfnuði við útlönd. Á föstu gengi1 jókst útflutningur vöru og þjónustu um 5% en innflutningur jókst um 5,7% frá sama tímabili árið áður. Halli á þáttatekjum við útlönd var 4,6 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2003 samanborið við 6 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra og rekstrarframlög voru neikvæð um 0,4 milljarða króna.
Innstreymi fjármagns mældist 14,1 milljarður króna á fyrsta fjórðungi ársins. Erlendrar lántökur voru 23,5 milljarðar króna og bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi var 6,6 milljarðar króna. Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 7,3 milljörðum króna. Aðrar fjárfestingar voru 6,4 milljarðar króna, einkum útlán bankanna til erlendra aðila sem hafa aukist mikið á síðustu árum og nema nú um 73 milljörðum króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega á fyrsta fjórðungi ársins og nam hann 36 milljörðum króna í lok mars 2003.
--------------------------------------------------------
1. Viðskiptavegin gengisvísitala er 11,5% lægri á fyrsta fjórðungi 2003 en á sama tímabili árið áður.
Greiðslujöfnuður við útlönd í milljörðum króna
Ársfjórðungar: | I. | II. | III. | IV. | I. |
2002 | 2002 | 2002 | 2002 | 2003 | |
Viðskiptajöfnuður | -1,5 | -1,8 | 2,6 | -0,1 | -1,0 |
Útflutningur vöru og þjónustu | 76,3 | 78,9 | 80,1 | 73,0 | 70,8 |
Innflutningur vöru og þjónustu | -71,4 | -75,5 | -75,4 | -71,1 | -66,8 |
Þáttatekjur og framlög, nettó | -6,4 | -5,2 | -2,1 | -1,9 | -5,0 |
Fjármagnsjöfnuður | 15,9 | 11,9 | -8,7 | -4,8 | 14,1 |
Hreyfingar án forða | 16,8 | 14,0 | 5,0 | -15,8 | 14,3 |
Gjaldeyrisforði (- aukning) | -0,9 | -2,1 | -13,6 | 11,0 | -0,2 |
Skekkjur og vantalið, nettó | -14,3 | -10,1 | 6,1 | 4,9 | -13,2 |