Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í maí 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1,6 milljarða króna milli mánaða og nam 36,9 milljörðum króna í lok maí (jafnvirði 518 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 1,2 milljarða og námu þau 9,9 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,8 milljarða króna í maí, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála. Þrátt fyrir þessi gjaldeyriskaup lækkaði gjaldeyrisforðinn og er það rakið til lánahreyfinga ríkissjóðs, lækkunar á erlendum skammtímalánum bankans og styrkingar krónunnar en gengi íslensku krónunnar hækkaði um rúmlega 1% í maí.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,7 milljarða króna í maí og námu 66,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 7,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,1 milljarð króna í maí og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í maí um 4,2 milljarða króna og nam það 32,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 15/2003
5. júní 2003
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||
---|---|---|---|---|
Í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2003 | |||
Desember | Maí | Frá ára- | Í | |
Eignaliðir : | 2002 | 2003 | mótum | maí |
Gjaldeyrisforði | 37.194 | 36.924 | -271 | -1.575 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.260 | 4.286 | -974 | -535 |
Ríkissjóðs | 1.816 | 1.194 | -622 | 10 |
Annarra | 3.445 | 3.092 | -353 | -544 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 69.141 | 66.255 | -2.886 | -4.703 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 8.227 | 7.890 | -337 | -477 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 16.499 | 9.857 | -6.642 | -1.203 |
Seðlar og mynt | 9.590 | 9.669 | 80 | 248 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 1.164 | 1.593 | 429 | -459 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 21.837 | 21.371 | -466 | -3.993 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 75 | 11 | -64 | -86 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.258 | 672 | -585 | -40 |
Liðir til skýringar: | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 20.696 | 27.067 | 6.371 | -372 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -20.846 | -25.830 | -4.984 | 55 |
Kröfur á aðra, brúttó | 77.454 | 74.253 | -3.201 | -5.181 |
Grunnfé: | 32.590 | 32.633 | 43 | -4.203 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.