Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, miðvikudaginn 18. júní.Samningstíminn er 13 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3 %. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 31,6 milljarðar króna en á innlausn voru 26,2 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 24. júní n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.
Nr. 25/2003
18. júní 2003