Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 1. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 28,3 milljarðar króna en á innlausn voru 31,6 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 8. júlí n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.
Nr. 27/2003
1. júlí 2003