Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 22,9 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 15. júlí 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 15. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 22,9 milljarðar króna en á innlausn voru 28,3 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 22. júlí n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr.29 /2003

15. júlí 2003