Fara beint í Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 45,1 milljarð króna22. júlí 2003

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 22. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3 %. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 45,1 milljarð króna en á innlausn voru 37 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 29. júlí n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 30 /2003

22. júlí 2003