Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 41,7 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 5. ágúst 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 5. ágúst.Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 41,7 milljarðar króna en á innlausn voru 45,1 milljarðurkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 12. ágúst n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 32/2003

5. ágúst 2003