Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í júlí 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði lítillega á milli mánaða og nam 36,5 milljörðum króna í lok júlí (jafnvirði 471 milljónar Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 4,1 milljarð króna og námu 0,3 milljörðum króna í lok hans.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 4,4 milljarða króna í júlí í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,5% í júlí.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 4,1 milljarð króna í júlí og námu 70 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu í stað og námu 8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 4,2 milljarða króna í júlí og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 28,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði í júlí um 3,5 milljarða króna og nam 37,8 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Í milljónum króna | ||||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2003 | |||||
Desember | Júlí | Frá ára- | Í | |||
Eignaliðir : | 2002 | 2003 | mótum | júlí | ||
Gjaldeyrisforði | 37.194 | 36.502 | -693 | -381 | ||
Gull | 1.727 | 1.731 | 4 | 67 | ||
Erlendur gjaldeyrir | 33.418 | 32.762 | -656 | -463 | ||
SDR | 12 | 7 | -5 | 0 | ||
Gjaldeyrisstaða IMF | 2.038 | 2.002 | -36 | 15 | ||
Markaðsskráð verðbréf | 5.260 | 4.277 | -983 | -51 | ||
Ríkissjóðs | 1.816 | 1.215 | -600 | 6 | ||
Annarra | 3.445 | 3.061 | -383 | -57 | ||
Kröfur á innlánsstofnanir | 69.141 | 66.989 | -2.151 | 4.146 | ||
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 8.227 | 8.006 | -221 | -19 | ||
Skuldaliðir: | ||||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 16.499 | 278 | -16.220 | -4.052 | ||
Seðlar og mynt | 9.590 | 10.555 | 965 | 620 | ||
Almennar innstæður innlánsstofnana | 1.164 | 624 | -541 | -1.971 | ||
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 21.837 | 26.638 | 4.802 | 4.829 | ||
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 75 | 16 | -59 | 3 | ||
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.258 | 954 | -304 | 168 | ||
Liðir til skýringar : | ||||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 20.696 | 36.224 | 15.528 | 3.671 | ||
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -20.846 | -28.671 | -7.825 | -4.216 | ||
Kröfur á aðra, brúttó | 77.454 | 75.102 | -2.352 | 4.116 | ||
Grunnfé: | 32.590 | 37.816 | 5.226 | 3.477 |
Nr. 21/2003
7. ágúst 2003
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Erlendur gjaldeyrir sýnir innstæður í erlendum bönkum og erlenda verðbréfaeign bankans. Gjaldeyrisstaða við IMF sýnir hreina innstæðu bankans hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.