Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 24,2 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 26. ágúst 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 26. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 24,2 milljarða króna en á innlausn voru 16,9 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 2. september n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 35/2003

26. ágúst 2003