Nýjar skýrslur um Ísland voru birtar á heimasíðuAlþjóðagjaldeyrissjóðsins (www.imf.org) 29. ágúst síðastliðinn, annars vegarreglubundin skýrsla um stöðu og horfur í efnahagsmálum (Staff Report for the 2003 Article IV Consultation) og hins vegarskýrsla um fjármálastöðugleika (Financial System Stability Assessment ' update).Síðarnefnda skýrslan var samin í kjölfar heimsóknar sérfræðinga á vegumAlþjóðagjaldeyrissjóðsins til Íslands sl. vor til þess að fylgja eftirviðamikilli úttekt á íslensku fjármálakerfi sem fram fór síðla árs 2000 og íársbyrjun 2001. Skýrslan um þá úttekt var birt á heimasíðualþjóðagjaldeyrissjóðsins í júní 2001.
Á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur einnig verið birt frétt hans umskýrslurnar og um umræður sem fram fóru um þær í framkvæmdastjórn sjóðsins seintí síðasta mánuði.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Jón Þ.Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs í síma 569-9600.
Nr. 23/2003
3. september 2003