Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 30. september. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfintil fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 21,6 milljarðar króna en á innlausn voru 21,8 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 7. október n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.
Nr. 40/2003
30. sept. 2003