Fara beint í Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 17,5 milljarða króna28. október 2003

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 28.október. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda áný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 17,5 milljarðar króna en á innlausn voru 22,1 milljarðurkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 4. nóvember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 44/2003

28. október 2003