Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands ílok október 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum íoktóber 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankansjókst í mánuðinum um 5,4 milljarða króna og nam 51,7 milljörðum króna íoktóberlok (jafnvirði 680 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendskammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námuþau rúmlega 16 milljörðum króna.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri áinnlendum millibankamarkaði fyrir 4,4 milljarða króna í október í samræmi viðáætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greintfrá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,3% íoktóbermánuði.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðumkróna í októberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréfríkissjóðs 0,7 milljörðum króna og lækkuðu þau um 0,5 milljarða króna en ímánuðinum voru ríkisbréf á gjalddaga.
Kröfur Seðlabankans áinnlánsstofnanir lækkuðu um 11,4 milljarða króna í október og námu 44,3milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttustlítið og námu 3,2 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfurbankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 11,6 milljarða króna í októberog námu nettóinnstæður ríkissjóðs 16,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði í október um 5,8 milljarða króna og nam 37,4milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 28/2003
6. nóvember 2003