Fara beint í Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 16 milljarða króna11. nóvember 2003

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 11.nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigendaá ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 16 milljarðar króna en á innlausn voru 17,5 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 18. nóvember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 46/2003

11. nóvember 2003