Fara beint í Meginmál

Nýjar reglur um bindiskyldu fjármálafyrirtækja2. desember 2003

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur sett nýjar reglur um bindiskyldufjármálafyrirtækja (lánastofnana) sem hafa starfsleyfi samkvæmt 1., 2. og 3. tl.4. greinar laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Fyrr á árinu boðaðiSeðlabankinn breytingar á bindiskyldu sem hefðu það að meginmarkmiði að samræma,eftir því sem aðstæður leyfa, starfsumhverfi hérlendra fjármálafyrirtækjastarfsumhverfi sambærilegra fyrirtækja í flestum löndum Evrópu (sbr. fréttbankans nr. 5/2003 frá 28. febrúar sl.). Þess var jafnframt getið að breytingumyrði hrundið í framkvæmd í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga yrðu bindihlutfölllækkuð nokkuð og í síðari áfanga yrðu reglur Seðlabankans um bindigrunn ogbindihlutfall færðar til samræmis við reglur sem Seðlabanki Evrópu hefur settlánastofnunum sem starfa í aðildarlöndum Efnahags- og myntbandalags Evrópu. Þessvar jafnframt getið að áfangarnir myndu væntanlega hvor um sig leiða tiláþekkrar lækkunar bindiskyldu. Fyrri áfanginn tók gildi í mars sl.

Í nóvemberhefti ársfjórðungsrits Seðlabankans Peningamála var frá því greintað ef nauðsynlegt reyndist myndi bankinn beita aðgerðum til þess að vinna gegninnlendri peningaþenslu af völdum reglulegra gjaldeyriskaupa sinna á komandiári. Hið sama gildir um áhrif breytinganna á bindiskyldu.

Sem fyrr segir hefur bankastjórn Seðlabanka Íslands núsett nýjar reglur um bindiskyldu og taka þær gildi 21. desember nk. Reglurnar hafa verið birtará heimasíðu Seðlabankansog verða birtar í B-deild Stjórnartíðinda nú ídesember.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 31/2003

2. desember 2003