Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 4. desember 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands ílok nóvember 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum ínóvember 2003 og frá ársbyrjun 2003.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 6,0 milljarða krónaog nam 57,7 milljörðum króna í nóvemberlok (jafnvirði 776 milljónaBandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans vegnagjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu þau rúmlega 16 milljörðumkróna.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,8milljarða króna í nóvember í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkjagjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,38% í nóvembermánuði.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í nóvember lokmiðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,6 milljarða króna ínóvember og námu 41,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrarfjármálastofnanir breyttust lítið og námu 3,6 milljörðum króna ímánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8,8 milljarðakróna í nóvember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,3 milljörðum króna í lokmánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 4,1 milljarð króna og nam 33,3milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 32/2003

4. desember 2003